Velkomin á heimasíðu Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð (F.S.E.)

Fréttir 2012

    25. apríl 2012

  Nú hefur fundargerð aðalfundar frá 6. mars sl. borist og er komin inn á heimasíðuna. Fundargerðina má lesa hér.
    GTS

    7. mars 2012

Í gærkveldi var aðalfundur FSE haldinn í Búgarði á Akureyri. Um 20 manns sóttu fundinn. 
  Tvö framsöguerindi voru flutt á fundinum:
Þórarinn Pétursson varaformaður Landssamtaka sauðfjárbænda fór yfir hvað helst er á baugi hjá landssamtökunum og horfur í sölu og markaðsmálum sauðfjárframleiðslunnar.
Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir ræddi um sauðfjársjúkdóma og varnir gegn þeim.
Nokkrar umræður spunnust í framhaldi af erindum þeirra Þórarins og Ólafs og beint var til þeirra fyrirspurnum.
Stjórn FSE lagði 6 tillögur fyrir fundinn, sem allar voru samþykktar.
Nánar verður hægt að fræðast um erindin og tillögurnar, þegar fundargerðin kemur hér inn á heimasíðuna.
Á fundinum gengu 4 nýliðar í félagið, en 2 eldri félagar gengu úr félaginu.
Breyting varð á stjórn félagsins. Sigríður Bjarnadóttir í Hólsgerði, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Í hennar stað var kjörin í stjórn Rósa Hreinsdóttir á Halldórsstöðum. 
Þá voru þau Birgir Arason í Gullbrekku og Ásta Fönn Flosadóttir í Höfða kjörin sem fulltrúar FSE á aðalfund Landssamtaka sauðfjárbænda, sem haldinn verður í Bændahöllinni 29. og 30. mars nk.
    GTS

    24. febr. 2012

        Aðalfundarboð!!!

FÉLAG SAUÐFJÁRBÆNDA VIÐ EYJAFJÖRÐ, FSE boðar til aðalfundar félagsins þriðjudagskvöldið 6. mars n.k. kl. 20:00 í fundarsal á Búgarði, Óseyri 2. 

  Dagskrá fundarins er eftirfarandi:                                     
    
1.      Fundarsetning
    2.      Skipan starfsmanna fundarins
    3.      Inntaka nýrra félaga / úrsögn 
           úr félaginu    
    4.      Skýrsla formanns og reikningar
    5.      Ávörp gesta:
        a.       Þórarinn I. Pétursson, LS 
        b.      Ólafur Jónsson, MAST
    6.      Tillögur.                                                                 
    7.      Kosningar.
    8.     Önnur mál. 
                                                                                                                  
  
Stjórn hvetur alla félaga til að mæta á aðalfund auk þess sem nýir félagar eru velkomnir í hópinn !                                       

                                                                                                        Stjórn FSE





    








Aðalfundur, jibbí - "fjölkindum!"
  
    

    19. febr. 2012

  Stjórn félagsins kom saman til fundar í Búgarði í kvöld. Fundargerðina má lesa hér.
        GTS 


    8. febr. 2012

Hér er vakin athygli á pistli Jóns H. Eiríkssonar búvísindanema við LBHÍ, sem hann ritar á vef ungra bænda.  Þar fjallar hann um NOR 98 riðuveikina, helstu einkenni, tilfelli hér innanlands auk þess að birta tilvísanir í rannsóknir.
    Pistilinn má sjá hér.
       GTS

    28. jan. 2012

  Hér er hlekkur inn á vef Landssamtaka sauðfjárbænda þar sem auglýst er bændaferð til Noregs.
    GTS

    25. jan. 2012

Sólris við Súlur mynd SÁF  Þótt nú sé liðið nokkuð á þennan fyrsta mánuð ársins, er enn full ástæða til að óska lesendum heimasíðunnar gæfu og gengis á árinu 2012.
  Einnig vil ég vekja athygli sauðfjárbænda og annarra áhugamanna um sauðfjárrækt á úttekt MAST á kjötmati á síðastliðnu hausti. 
  Greinargerð um þessa úttekt má lesa hér.
    GTS 
 
clockhere

Nafn:

Félag sauðfjárbænda við Eyjafjörð

Farsími:

Formanns 845-0029

Afmælisdagur:

Stofnað 24. júní 1985

Heimilisfang:

Gullbrekka Eyjafjarðarsveit 601 Akureyri

Staðsetning:

Við Eyjafjörð

Heimasími:

Formanns 463-1511

Um:

Vefstjóri Guðmundur Skúlason

Kennitala:

460306-2210

Tenglar

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 12
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 22183
Samtals gestir: 8277
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:57:33